Reðasafnið vill lim Orra frá Þúfu

Hið íslenzka reðasafn vill fá lim stóðhestsins Orra frá Þúfu, sem var felldur á dögunum. Hjörtur Gísli Sigurðsson segist ætla að setja allt á fullt og athuga hvort möguleikinn á að hafa lim Orra til sýnis á safninu sé fyrir hendi:

Það væri gaman að fá svona frægt eintak. Og vel notað. Þetta var mikill gæðagripur. Við eigum lim frá einum frægum stóðhesti en Orri ber höfuð og herðar yfir alla stóðhesta nútímans. Nú fer ég að spjalla við menn.

Orri frá Þúfu var þekktasti stóðhestur landsins. Hann varð tuttugu og átta vetra gamall og var dýrasti stóðhestur landsins síðastliðin fimmtán til tuttugu ár. Afkvæmi Orra voru um 1.320 talsins og áætlað verðmæti þeirra eru um tveir milljarðar króna.

Hið íslenzka reðasafn stendur við Hlemm í Reykjavík og hefur til sýnis getnaðarlimi undan hinum ýmsu dýrum. Frægasti gripur safnsins er limur Páls Arasonar sem hafði heitið því að gefa safninu kynfæri sín eftir andlát sitt.

Auglýsing

læk

Instagram