Reykjavíkurdætur svara: Starfsfólk brást ekki við dónaskap unglinganna

Konan sem skrifaði grein um tónleika Reykjavíkurdætra á grunnskólahátíð í Hafnarfirði var ekki á staðnum. Unglingarnir voru byrjaðir að púa áður en hljómsveitin steig á svið. Þetta segir Reykjavíkurdóttirin Anna Tara í grein á Vísi.

Sjá einnig: Hafnfirskir unglingar púa á ögrandi Reykjavíkurdætur

Púað var á Reykjavíkurdætur sem svöruðu í sömu mynt á grunnskólahátíð í Hafnarfirði fyrr í febrúar. Í aðsendri grein Sædísar Finnbogadóttur, starfsmanns félagsmiðstöðvar í grunnskóla í Hafnarfirði á Bleikt.is í vikunni kemur fram að hljómsveitin hafi misboðið bæði starfsfólki og áhorfendum.

Anna Tara hefur eftir Geir Bjarnasyni, forvarnarfulltrúa Hafnafjarðarbæjar, að Sædís hafi ekki verið viðstödd tónleikana eða í vinnu þetta kvöld. Hún hafi því upplýsingar frá þriðja aðila. „Innihald greinarinnar er ekki vel unnið og kemur að engu leiti frá ÍTH eða Hafnarfjarðarbæ,“ segir Anna.

Það var púað á Reykjavíkurdætur frá því að þær voru kynntar á svið. Starfsfólkið brást ekki við dónaskap gestanna. Á endanum ákváðu Reykjavíkurdætur að verða við bón krakkana sem báðu ítrekað um að lagið Næs í Rassinn með Hljómsveitt yrði flutt.

Samkvæmt grein Önnu Töru voru skiptar skoðanir meðal starfsmanna hvort það ætti að taka það lag á grunnskólaballi.

„Því ákvað Geir Bjarnason forvarnafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar að senda út afsökunarbeiðni. Hann bað um athugasemdir frá Reykjavíkurdætrum varðanda það mál,“ segir Anna.

Athugasemdin frá Hljómsveitt birtist hér í fullri lengd:

„Upphaflega var ekki ætlunin að taka lagið Næs í Rassinn með Hljómsveitt á skemmtuninni, en þar sem áhorfendur báðu ítrekað um það og hættu ekki að púa, kasta í okkur flöskum, klinki og gúrku fyrr en við tókum það, þá enduðum við á því að gera það. Okkur þykir leiðinlegt ef lagið Næs í rassinn með Hljómsveitt hafi komið illa við einhverja. Hins vegar veltum við því fyrir okkur hvers vegna er rangt að taka lagið Næs í Rassinn fyrir unglinga? Viljum við ekki fræða unglinga um kynlíf á jákvæðan og uppbyggilegan máta út frá virðingu og jafnræði? Við búum í þeim veruleika að krakkar á unglingastigi hafa aðgang að internetinu og það er afar ólíklegt að við séum fyrstar til að færa þeim fréttirnar um tilvist endaþarmsörvunar. Hinsvegar erum við líklega fyrstar til að fjalla um verknaðinn út frá gagnkvæmri virðingu og nautn. Kynfræðsla í grunnskólum er oft ábótavön, og fannst okkur vera kominn tími til að bæta úr því. Hins vegar skiljum við að það séu skiptar skoðanir um hvort það megi taka sér bessaleyfi til að fræða börn annarra. Því má alveg skoða hvort þetta lag eigi heima á grunnskólahátíð.“

Loks veltir Anna Tara fyrir sér af hverju púað var á Reykjavíkurdætur áður en þær stigu á svið.

„Hver hefur ekki farið á leiðinlega tónleika? Er þá púað? Hvað veldur því að krakkar og er virtist vera aðallega strákar hafi svo mikla óbeit á Reykjavíkurdætrum að þeir púi?“

Auglýsing

læk

Instagram