Rich Piana sagður hafa tekið of stóran lyfjaskammt, haldið sofandi í öndunarvél

Vöðvatröllinu Rich Piana, fyrrverandi tengdasyni Íslands, er haldið sofandi í öndunarél eftir að hafa verið fluttur meðvitundarlaus af heimili sínu í Flórída fyrr í vikunni. Þetta kemur fram á vefmiðlinum TMZ.

Sjá einnig: Rich Piana greinist með húðkrabbamein

Rich Piana var á tímabili kvæntur vaxtaræktarkonunni Söru Heimisdóttur. Þau skildu síðasta sumar eftir árs hjónaband. Rich er afar vinsæll á samfélagsmiðlum en hundruð þúsunda fylgja honum á Instagram og Youtube.

Í frétt TMZ um málið kemur fram að sjúkralið hafi verið kallað á heimili Rich Piana og kærustu hans, Chanel Renee, að kvöldi mánudags. Þegar þau komu á staðinn var Rich meðvitundarlaus en mögulegt er að hann hafi tekið of stóran skammt af lyfjum. Ekki kemur fram hvaða lyfjum. Hann var fluttur á sjúkrahús og er nú haldið sofandi í öndunarvél.

Ekki er vitað meira um líðan hans í dag.

Auglýsing

læk

Instagram