Rólegt á útihátíðum í nótt

Rólegt var á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt samkvæmt frétt RÚV en enginn gisti fangaklefa. Sömuleiðis var rólegt á Akureyri í nótt en einn gisti fangaklefa.

Í Vestmannaeyjum rigndi duglega upp úr miðnætti og héldu gestir sig því inni í tjöldum en létt hefur til í morgunsárið og sólin komin á loft, sól og blíða er því í dalnum.

Á Akureyri var fjöldi fólks á tjaldsvæðum en mest fjölskyldufólk. Einn gisti fangaklefa í nótt vegna þess að hann fór of geyst í drykkju. Skúrir voru fyrir norðan í nótt og lágskýjað og 10 stiga hiti er á Akureyri.

Auglýsing

læk

Instagram