Ronda Rousey leikur aðalhlutverkið í kvikmynd byggðri á ævi sinni

Kvikmynd byggð á ævi bardagakonunnar Rondu Rousey er væntanleg. Ekki nóg með það, þá hyggst Rousey fara sjálf með aðalhlutverkið í myndinni sem verður byggð á sjálfsævisögu hennar, My Fight/Your Fight.

Sjá einnig: Ronda Rousey svarar fyrir sig og skýtur föstum skotum til baka á Floyd Maywather

Ronda Rousey er eflaust stærsta stjarna UFC-bardagasambandsins ásamt Íranum Conor McGregor. Hún sýndi mátt sinn og megin um helgina þegar hún rotaði andstæðing sinn, hina brasilísku Bethe Correia, 34 sekúndum eftir að bardaginn hófst.

Rousey er byrjuð að koma sér á framfæri í Hollywood en hún fór með hlutverk í Entourage-myndinni, sem var frumsýnd fyrr á þessu ári. Þá lék hún einnig í Fast and the Furious 7 og Expendables 3.

Rousey skrifaði sjálfsævisögu sína ásamt systur sinni, Mariu Burns Ortiz. Hún hefur starfað sem blaðamaður fyrir ESPN, Fox News Lation og Associated Press.

 

Auglýsing

læk

Instagram