Selena Gomez fjarlægir mynd þar sem hún sýnir ökkla í mosku

Poppstjarnan og leikkonan Selena Gomez hefur eytt mynd af Instagram þar sem hún sýnir ökkla í mosku í Abu Dhabi. Myndina má sjá neðan er í fréttinni.

Samkvæmt fréttavefnum TMZ fannst leiðtogum moskunnar stelling Gomez ósmekkleg. Samkvæmt reglum moskunnar þurfa gestir hennar að klæðast íhaldssömum, hógværum og víðum fötum. Þá er konum bent á að klæðast pilsum sem ná yfir ökkla.

Myndin sýnir að Gomez var í réttum klæðnaði en hún sýnir ökklann sem virðist hafa farið fyrir brjóstið á leiðtogum moskunnar.

Auglýsing

læk

Instagram