Siggi Hlö hrekkti Valdimar Gríms á afmælisdaginn, ætlar að hefna sín tvöfalt

Útvarps- og markaðsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö, hrekkti Valdimar Grímsson, handboltahetju og fyrrverandi landsliðsmann, allsvakalega á afmælisdag þess síðarnefnda í síðustu viku.

Siggi setti inn skilaboð á Facebook-síðu sína þar sem hann hvatti alla 4.986 vini sína til að senda Valdimar sms með heillaóskum. Hann birti símanúmer Valdimars og sagði takmarkið að fylla símann af heillaóskum. „Sá verður hissa þegar hann fær fleiri þúsund sms,“ sagði Siggi.

Valdimar var staddur í Danmörku á afmælisdaginn og staðfestir í samtali við Nútímann að Sigga hafi heldur betur tekist að hrella sig. „Það gerðist ýmislegt þarna framundir miðnætti. Það voru endalaust píb — ég fékk engan frið,“ segir hann léttur.

Spurður hversu mörg skilaboðin voru segist hann ekki hafa hugmynd um það, þau hafi verið hundruð ef ekki þúsundir. „En það er gott við tækið, að það má slökkva á því,“ segir hann.

Valdimar segir að Siggi eigi ekki von á góðu, enda sé hann þekktur fyrir að hefna sín tvöfalt.

Það hefur verið klassískt í mínu fari. En hvað það verður veit ég ekki.

Hann bætir við að það sé ekki nóg fyrir Sigga að gæta sín á afmælisdaginn, sem er reyndar ekki fyrr en í mars, heldur þurfi hann nánast að vera með augu á hnakkanum alla daga.

Valdimar segir þó að lokum grín Sigga hafi tekist mjög vel. „Þetta var bara geggjað — alltaf gaman að góðum húmor.“

Auglýsing

læk

Instagram