Sjáðu Ara Eldjárn kitla hláturtaugar Ástrala: „Helstu útflutningsvörurnar okkar eru fiskur og vonbrigði“

Grínistinn Ari Eldjárn hefur gert það gott í Ástralíu undanfarið og komið fram á fjölmörgum uppistandssýningum. Myndband sem sýnir Ara á fyrsta kvöld grínhátíðinni Comedy Allstarfs Supershow hefur verið birt á Youtube og sýnir Ara kitla hláturtaugar Ástrala allrækilega. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Ari gerir að sjálfsögðu grín að smæð Íslendinga ásamt því að koma inn á helstu útflutningsvörurnar okkar: Fisk og vonbrigði. Allt féll þetta vel í kramið hjá Áströlum.

Auglýsing

læk

Instagram