Skiptar skoðanir hjá erlendu pressunni um hvort Ísland fari áfram

Vodafone dælir nú inn myndböndum frá Austurríki á Youtube-síðu sína. Nú rétt í þessu var birt myndband þar sem kannað var hvað blaðamenn í Vín hafa að segja um íslenska lagið.

Skiptar skoðanir eru um hvort íslenska lagið fari áfram í kvöld. Flestir virðast jákvæðir gagnvart því og ein var svo viss um það að hún hafði lagt pening undir.

Aðrir eru ekki eins vissir í sínni sök. Horfðu á hvað blaðamennirnir hafa að segja í myndbandinu hér fyrir neðan.

Útsendingin frá Austurríki hefst klukkan 19 í kvöld.

Auglýsing

læk

Instagram