Söngvari Slipknot við Kanye West: „Þú ert ekki mesta rokkstjarna í heims“

Corey Taylor, söngvari þungarokkhljómsveitarinnar Slipknot, biður Kanye West um að hætta að kalla sig mestu rokkstjörnu heims í myndbandi sem birtist á Youtube síðu Music Choice. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Kanye West tók eigin útgáfu af Bohemian Rhapsody á Glastonbury

Rapparinn sagði síðast við áhorfendur á tónlistarhátíðinni Glastonbury að þeir væru að fylgjast með „mestu núlifandi rokkstjörnu á plánetunni.“

Taylor er ósammála og segir: „Kanye, þú ert ekki – ekki – mesta núlifandi rokkstjarna allra tíma.“

Sú staðreynd að þú sért að segja fólki það segir meira en mörg orð. Þú minnir mig á gaurinn sem montar sig að hafa sofið hjá fullt af stelpum. Þeir fá aldrei jafn mikið og þeir segja. Hættu þessu. Hættu.

Skilaboðin má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram