Spjallþáttastjórnandi skoðar sig um á Íslandi

Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Seth Meyers ferðast nú um Ísland. Hann birtir myndir af ferðalagi sínu á Instagram.

Seth Meyers var kynnir á Emmy-verðlaununum í sumar. Hann stýrir þættinum Late Night with Seth Meyers á sjónvarpsstöðinni NBC. Þar áður var hann yfirhandtritshöfundur þáttarins Saturday Night Live.

Meyers lék ásamt Brendan Fraser og Anítu Briem í kvikmyndinni Journey to the Center of the Earth en í fyrra tók hann við af Jimmy Fallon sem stjórnandi Late Night-þáttarins á NBC. Fallon byrjaði sem kunnugt er að stýra The Tonight Show og tók þar við af Jay Leno.

http://youtu.be/HBMPqGOoyVA

Auglýsing

læk

Instagram