Stefán Karl fékk þúsund tillögur að nafni fyrir nýjan heimiliskött: Indriði, Trölli og Sigmundur Davíð

Leikarinn Stefán Karl Stefánsson færði eiginkonu sinni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, kettling í jólagjöf. Hann er persi og er væntanlegur til fjölskyldunnar 13. janúar.

Stefán Karl kynnti kisa til sögunnar á fimmtudaginn þegar hann deildi mynd af honum á Facebook-síðu sinni. Sá litli var þá nýkominn úr baði en hann dvelur enn hjá mömmu sinni.

Stefán Karl óskaði jafnframt eftir hugmyndum að nafni fyrir köttinn og hafa tæplega þúsund tillögur borist á tveimur sólarhringum. Það er ljóst að það verður úr vöndu að velja.

Meðal þeirra hugmynda sem hafa borist eru nöfnin Indriði, Trölli, Einar Áskell, Jón Ljón og Sigmundur Davíð.

Leikarinn Randver Þorláksson stakk upp á nafninu Sorry, fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason vill að kisi heiti Þangbrandur, þingkonan Svandís Svavarsdóttir stingur upp á nafninu Þanki. Þá stakk söngkonan Selma Björnsdóttir upp á nafninu Gullinstjarna.

Auglýsing

læk

Instagram