Steinþór og Glódís selja íbúðina í Vesturbænum: „Hefur ykkur dreymt um að búa í himnaríki?“

Gettu Bet­ur dóm­ar­inn, Steinþór Helgi Arn­steins­son og fim­leika­stjarn­an Gló­dís Guðgeirs­dótt­ir hafa sett íbúð sína í Vesturbænum á sölu. Steinþór greindi frá þessu á Twitter í dag.

„Hefur ykkur dreymt um að búa í himnaríki? Well, þá getið þið látið þann draum verða að veruleika, því ég, Einsi og erum að selja íbúðina okkar,“ segir Steinþór og bætir við því að stærsti plúsinn verði að þau verði nágrannar þar sem þau séu sjálf að flytja í næsta stigagang.

Íbúðin er ansi snotur en í lýsingu á Fasteignavef Vísis segir meðal annars: „Sérlega rúmgóð og glæsileg 93 fermetra tveggja herbergja íbúð á 1.hæð í þessu vandaða og glæsilega húsi á besta stað í Vesturbænum.“

Auglýsing

læk

Instagram