Stórkostlegt myndband Guðmundar slær í gegn: „Ég er með smá tilkynningu, ég er hommi“

„Ég er með smá tilkynningu: Ég er hommi.“

Svona hefst myndband sem hinn 16 ára gamli Guðmundur Kári Þorgrímsson setti á Facebook fyrir helgi. Búið er að horfa meira en 50 þúsund sinnum á myndbandið og fólk keppist við að hrósa Guðmundi fyrir hugrekkið. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Guðmundur er frá Erpsstöðum skammt frá Búðardal, og segir í samtali við DV að hann hafi komið út úr skápnum í sumar.

Hann segir myndbandið hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð og að margir unglingar hafi haft samband við hann til að biðja um ráð eða segja hversu mikið þeir tengja við myndbandið.

Svo eru líka bara krakkar sem vilja bara spjalla og spyrja hvernig mér liði eftir þetta.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

ef þið viljið spjalla þá er snap: gummitviburi

Posted by Guðmundur Kári Þorgrímsson on Friday, September 18, 2015

Auglýsing

læk

Instagram