Taugatrekkjandi brot úr nýjustu mynd Baltasars: Ingvar E. á toppi Everest

Stikla úr kvikmyndinni Everest, eftir Baltasar Kormák, hefur verið birt á Youtube. Stikluna má sjá hér fyrir neðan.

Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk í henni ásamt Jake Gyllenhaal, Keiru Knightley, Robin Wright, Josh Brolin, Emily Watson og Sam Worthington.

Sjá einnig: Brjálað að gera hjá Balta

Myndin er byggð á bókinni Into Thin Air eftir rithöfundinn og fjallagarpinn Jon Krakauer. Segir hún frá hörmungaratburðum sem áttu sér stað á Everestfjalli árið 1996 þar sem átta fjallgöngumenn fórust.

Auglýsing

læk

Instagram