Það stendur ekki til að rukka þig fyrir notkun á Facebook þótt þú hafi fengið skilaboð um það

Ekkert bendir til þess að Facebook sé að byrja að rukka notendur sína fyrir notkun á samfélagsmiðlinum. Skilaboð þar sem þessu er haldið fram ganga nú manna á milli á Facebook og hafa skotið reglulega upp kollinum frá árinu 2009.

Fjölmargir hafa fengið skilaboð frá vinum sínum þar sem Mark Zuckerberg ávarpar notendur Facebook og segir að til standi að rukka fyrir notkun á samfélagsmiðlinum. „Ef þú sendir þessi skilaboð til 18 vina þinna færðu blátt merki við nafnið þitt og notar Facebook frítt,“ kemur fram í skilaboðunum.

Skilaboðin eiga sér enga stoð í raunveruleikanum en hafa engu að síðu náð að plata marga. Fjölmargir hafa óskað eftir því að fólk hætti að senda sér þessi skilaboð og hefur Nútíminn fengið fréttir af pósthólfum sem eru yfirfull af skilaboðunum fölsku.

Í skilaboðunum kemur einnig fram að Facebook loki „á morgun“ og verði aðeins aðgengilegt þeim sem hafa greitt fyrir notkunina. Sjáðu skilaboðin hér fyrir neðan.

Vefmiðillinn Snopes, sem sérhæfir sig meðal annars í að kanna sannleiksgildi frétta og slúðurs sem nær flugi á internetinu, fjallar um skilaboðin og rekur þau aftur til ársins 2009. Þar kemur fram að svipuð skilaboð hafi skotið reglulega upp kollinum síðustu ár.

Snopes vitnar einnig í Mark Zuckerberg, forstjóra Facebook, sem sagði í yfirheyrslu í bandaríska þinginu á dögunum að það verði alltaf til frí útgáfa af Facebook. Þykir það benda til þess að útgáfa sem notendur myndu greiða fyrir sér líklega á teikniborðinu, þó það hafi hvorki verið tilkynnt eða kynnt.

Fölsku skilaboðin líta svona út

Hi, I’m Mark Zuckerberg The Director of facebook.

Hello everyone, it seems that all the warnings were real, facebook use will cost money

If you send this string to 18 different from your list, your icon will be blue and it will be free for you.

If you do not believe me tomorrow at 6 pm that facebook will be closed and to open it you will have to pay, this is all by law.

This message is to inform all our users, that our servers have recently been very congested, so we are asking for your help to solve this problem. We require that our active users forward this message to each of the people in your contact list in order to confirm our active facebook users if you do not send this message to all your facebook contacts then your account will remain inactive with the consequence of Lose all your cont the transmission of this message. Your SmartPhone will be updated within the next 24 hours, will have a new design and a new color for the chat. Dear Facebook users, we are going to do an update for facebook from 23:00 p.m. until 05:00 a.m. on this day. If you do not send this to all your contacts the update will be canceled and you will not have the possibility to chat with your facebook messages

Will go to pay rate unless you are a frequent user. If you have at least 10 contacts

Send this sms and the logo will turn red to indicate that you are a user

Confirmed … We finish it for free Tomorrow they start to collect the messages for facebook at 0.37 cents Forward this message to more than 9 people of your contacts and it will be free of life for you to watch and it will turn green the ball of above do it and you will see.to 9 of you

Auglýsing

læk

Instagram