Þessi mynd af fjölskyldu Dags B. útskýrir margt

Hárprýði borgarstjórans Dags B. Eggertssonar hefur oft verið á milli tannana á fólki. Nú síðast sagði R. Kurt Osenlund, aðalritstjóri Out Magazine, að Dagur sé hugsanlega með fallegasta hár karlmanns á Íslandi, í viðtali á vefnum Gay Iceland.

Dagur birti nýlega þessa mynd á Facebook, sem útskýrir ýmislegt:

Þetta er semsagt einstaklega hárprúð fjölskylda Dags. Móðurfjölskylda hans gengur undir nafninu Krullurnar, eins og hann útskýrir sjálfur:

Ég var spurður að því um daginn af hverju móðurfólkið mitt gengur undir nafninu Krullurnar. Ég segi einsog Megas: „Við því er til eitt og annað loðið svar.“ Ég er þessi snöggklippti eins árs neðst í horninu í fanginu á mömmu sem skellti í sig rúllum til að slétta úr hárinu – enda ekki annað hægt í tilefni fjölskyldumyndatöku. Myndin er úr safni Gulla frænda.

Þá vitum við allavega hvaðan hárið kemur.

Auglýsing

læk

Instagram