Tom Hanks minnist þess með ánægju hversu flottan rass hann var með þegar hann lék Forrest Gump

Leikarinn Tom Hanks minnist þess með ánægju hversu vel rass hans leit út þegar hann lék í myndinni Forrest Gump sem kom út árið 1994, eða fyrir 22 árum.

Gump fer víða í myndinni og hleypur meðal annars yfir Bandaríkin. Þá kemst hann einnig í ruðningslið vegna þess að hann er svo sprettharður.

Hanks segist hafa æft töluvert áður en tökur hófust á myndinni og skiluðu hlaupin sér.

Hann segir að í hvert skipti sem eiginkona hans, Rita Wilson, horfir á myndina í sjónvarpinu bíði hún spennt eftir einu tilteknu atriði þar sem Gump tekur á sprett frá myndaválinni.

Hanks viðurkennir að hann sé ekki með jafn flottan rass í dag.

Tom Hanks kom fram í The Graham Norton Show í gær

Auglýsing

læk

Instagram