Tom Hardy skammast sín akkúrat ekki neitt fyrir gömlu myndirnar af Myspace

Leikarinn Tom Hardy hefur tjáð sig um myndir sem hann birti á Myspace fyrir löngu og skjóta reglulega upp kollinum á internetinu. Nokkrar af myndunum má sjá hér fyrir neðan en sumum gæti fundist þær ansi vandræðalegar fyrir leikarann.

Hardy skammast sín hins vegar ekki neitt, eins og kom fram í viðtali við hann á vef Sky.

„Ég skammast mín ekki neitt fyrir þessar myndir, sérstaklega ekki fyrir myndina af mér á nærbuxunum. Það er stórkostleg mynd af manni í sínu nattúrulega umhverfi,“ sagði hann.

Í Bandaríkjunum er talað um að ég þurfi að skammast mín. Ég skammast mín ekki neitt. Þetta er ég í mínu náttúrulega umhverfi, takk fyrir. Ég er kannski ekki Adonis en ég vil líta á mig sem Adonis á þessari mynd.

Hér má sjá umrædda mynd

Og nokkrar í viðbót

grid-cell-32042-1441718680-14

grid-cell-32042-1441718679-11

grid-cell-32042-1441718682-17

Auglýsing

læk

Instagram