Tónleikagestir hvattir til þess að mæta tímanlega: Strætó bíður upp á hraðferðir

Reiknað er með því að stórtónleikar Guns N’ Roses verði þeir stærstu og fjölmennustu í Íslandssögunni. Tónleikarnir fara fram á Laugardalsvelli þann 24. júli í fínu veðri ef marka má veðurspá. Reiknað er með yfir 25 þúsund manns á tónleikanna.

Skipuleggjendur tónleikanna hvetja fólk eindregið til að fara tímanlega niður á völl til að forðast raðir en í tilkynningu frá forsvarsmönnum tónleikanna segir að völlurinn verði opnaður 16:30. Íslenska rokksveitin Brain Police stígur á sviðið klukkan 17:15 og byrjar þá formleg dagskrá.

Götulokanir:
Reykjavegur verður lokaður fyrir og á meðan tónleikum stendur og þá verður Engjavegur lokaður frá klukkan 16 nema fyrir tónleikagesti. Suðurlandsbraut verður lokuð að hluta eftir að tónleikum lýkur.

Til að komast á völlinn:
Tónleikahaldarar ásamt lögreglu og Reykjavíkurborg mælast til þess að fólk fari tímanlega af stað og nýtist eins og frekast er kostur við almenningssamgöngur, virka ferðamáta (ganga eða hjóla) eða sameinist í bíla. Besti staðurinn til þess að hleypa fólki út úr leigu eða fólksbílum er við Glæsibæ eða á Sundlaugarvegi.

Bílastæðin í kringum Laugardalshöllina verða opin en til þess að geta lagt verða að vera fjórir eða fleiri miðahafar í bíl. Boðið verður upp á sérstakar hraðferðir Strætó frá þremur stöðum í borginni og beint niður í Laugardal. Þessar hraðferðir munu fara frá Háskólanum í Reykjavik, Mjóddinni og strætóstoppitöðinni norðanmegin við Kringluna (hjá Orkunni).

Tónleikarhaldarar mælast til þess að fólk leggi á bílastæðinu við Sjóvá og fyrir aftan Verslunarskólann.

Sömu leiðir munu fara frá Laugardalshöll við Suðurlandsbraut og til baka eftir tónleika. Miðahafar á tónleikana fá frítt í þessar ferðir gegn framvísun miða.

Auglýsing

læk

Instagram