Tveir karlmenn í haldi lögreglu grunaðir um að hafa ráðist á fimm ára dreng

Tveir karlmenn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa ráðist að fimm ára dreng í miðborg Reykjavíkur seinnipartinn í gær. Vísir greinir frá þessu.

Drengurinn sat í barnastól í aftursæti bíls sem móðir hans keyrði þegar tveir menn í annarlegu ástandi rifu upp hurð bílsins. Við það hrópaði konan sem varð til þess að þeir fóru. Þegar mennirnir voru farnir áttaði konan sig á því að sonur hennar var blóðugur og virðist hafa verið laminn í andlitið.

Mennirnir voru handteknir stuttu síðar og samkvæmt heimildum Vísis slasaðist barnið ekki alvarlega en er í miklu áfalli.

Auglýsing

læk

Instagram