Ungar stelpur í uppreisn: Með gataðar geirvörtur eins og Rihanna

Mikil aukning hefur orðið á því að stúlkur láti gata á sér geirvörturnar. Eigandi stofu sem sér um slíkar aðgerðir segir að aðsóknin hafi aukist um 100 prósent á síðustu árum og að stúlkur allt niður í fjórtán ára gamlar láti gata á sér geirvörturnar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Gataðar geirvörtur virðast njóta talsverðra vinsælda í Hollywood en á myndinni fyrir ofan má sjá Amber Rose, Rihönnu og Kardashian-systurina Kylie Jenner. Þær eru allar með gataðar geirvörtur.

Seselia Guðrún Sigurðardóttir, eigandi Tattoo og skart á Hverfisgötu, segir í Fréttablaðinu að stór hópur við vinsældir götunar á geirvörtum tengist auknum vinsældum fitness-keppni hér á landi enda taki stór hópur viðskipta þátt í slíkum keppnum:

Þetta er gríðarlega vinsælt hjá ungu stelpunum í dag og við erum að fá stúlkur allt niður í 14 ára inn á stofu til okkar í fylgd með foreldrum. Undanfarið ár hefur aðsóknin aukist um 100% og aldur þeirra sem óska eftir þjónustunni verður sífellt lægri.

Seselia segist í Fréttablaðinu fullviss um að yngstu stúlkurnar sem sækja í götunina séu í ákveðinni uppreisn gegn foreldrum sínum:

„Lokkinn var ég með í mér í tvö ár eða þar til það rann upp fyrir mér að þetta væri gersamlega tilgangslaust. Þetta var skraut sem fékk aldrei að njóta sín og gerði ekkert fyrir mig í ástarlífinu. Uppreisnin var sumsé allsráðandi.“

Auglýsing

læk

Instagram