Veistu hver á þennan gítar? Auglýsir eftir eiganda gítars sem hann stal á Eldborg fyrir 15 árum

Bragi Páll Sigurðarson, blaðamaður á Stundinni, auglýsir eftir eiganda forláta Yamaha kassagítars á Facebook-síðu sinni. Bragi stal gítarnum á Eldborgarhátíðinni um verslunarmannahelgina árið 2001 og vill nú, 15 árum síðar, koma honum í réttar hendur.

„Sumarið 2001 fór ég á hina alræmdu útihátíð Eldborg. Þá helgi gerði ég ýmislegt sem varð mér til mikillar skammar, meðal annars stal ég þessum fallega og hljómfagra Yamaha kassagítar,“ segir Bragi.

Ég man ekki nákvæmlega hvernig það gerðist, en rámar þó í að ég hafi tekið hann ófrjálsri hendi úr einhverju tjaldi.

Það var svo fyrir nokkrum vikum að hann áttaði sig á því að gítarinn væri þýfi. „Síðan þá hef ég verið að velta því fyrir mér hvernig ég geti leiðrétt þetta brot mitt,“ segir hann. „Ég ætla þessvegna að gera tilraun til þess að koma gítarnum aftur til síns rétta eiganda.“

Bragi hvetur þau sem þekkja manneskju sem saknar gítars að láta viðkomandi vita.

„Ef mér tekst ekki að finna hinn rétta eiganda langar mig til þess að koma honum í hendurnar á einhverjum öðrum sem vantar gítar,“ segir hann.

„Hvort sem það er félagsmiðstöð, leikskóli (ég einmitt notaði hann á tímabili í kringum 2003-4 á leikskóla sem ég vann á. Þar fékk hann þennan fína „Lúlli Löggubangsi“ límmiða) eða einhver önnur stofnun eða einstaklingur sem getur notað hann með hreinni samvisku en ég.“

Hér má sjá færslu Braga.

Sumarið 2001 fór ég á hina alræmdu útihátíð Eldborg. Þá helgi gerði ég ýmislegt sem varð mér til mikillar skammar, meðal…

Posted by Bragi Páll on Sunday, March 20, 2016

Auglýsing

læk

Instagram