Zúistar hefja endurgreiðslur til meðlima félagsins

Trúfélagið Zuism hefur hafið endurgreiðslur til meðlima félagsins. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu en þar segir að þeir sem óskað hafa eftir endurgreiðslu hafi sumir hverjir greint frá því á samfélagsmiðlum að endurgreiðsla hafi borist.

Sjá einnig: Zúistar fengu 53 milljónir úr ríkissjóði, óvíst hvort nýr forstöðumaður endurgreiði meðlimum sóknargjöldin

Forsvarsmenn félagsins höfðu heitið því að endurgreiða meðlimum sóknargjöld í þessum mánuði. Til að fá endurgreiðslu þurfa meðlimir að gefa upp fullt nafn, netfang, kennitölu og bankanúmer á heimasíðu félagsins.

Auglýsing

læk

Instagram