today-is-a-good-day

Rjómalagaður dijon kjúklingur með rósmarín

Hráefni:

  • 2 kjúklingabringur, skornar í tvennt þvert á bringurnar svo úr verði 4 þunnar bringur
  • 4-5 msk hveiti
  • 1 msk ólívuolía
  • 1 msk smjör
  • 3 rósmarín stilkar
  • 1 dl hvítvín
  • 3 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 3 msk dijon sinnep
  • 2 1/2 dl rjómi
  • Salt & pipar eftir smekk
  • 1/4 teningur kjúklingakraftur

Aðferð:

1. Hitið olíu og smjör á pönnu. Veltið kjúklingnum upp úr hveiti og steikið hann næst í um 5 mín á hvorri hlið. Takið hann til hliðar af pönnunni og leggið á disk eða fat.

2. Takið rósmarín nálarnar af stilkunum og steikið þær á pönnunni í 1 mín. Bætið þá hvítvíni, hvítlauk, kjúklingakrafti og dijon sinnepi á pönnuna. Leyfið þessu að malla stutta stund og hellið þá rjómanum saman við. Færið kjúklinginn aftur á pönnuna saman við sósuna og leyfið þessu að malla á lágum hita í 10 mín. Kryddið til með salti og pipar eftir smekk.

Auglýsing

læk

Instagram