Á æfingu með einum svakalegasta kraftlyftingamanni landsins, sjáðu myndbandið

Kraftlyftingamaðurinn Rúnar Geirmundsson undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramót í kraftlyftingum sem fer fram í Las Vegas í nóvember. Mótið er það stærsta sem Rúnar hefur tekið þátt í.

Sjá einmitt: Rúnar fékk sér svakalegt tattú á hausinn: „Mesti sársauki sem ég hef nokkurn tímann upplifað“

Elísabet Inga, útsendari Nútímans, kíkti á grjótharða æfingu með Rúnari. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Rúnar birti færslu á Facebook á dögunum þar sem hann kyngdi stoltinu og óskaði eftir frjálsum framlögum til að hjálpa til við að standa straum af kostnaði við að keppa fyrir Íslands hönd í útlöndum.

„Ég yrði ykkur ævinlega þakklátur, reyni mitt besta í að gefa til baka og lofa að halda áfram að vera góð fyrirmynd,“ segir hann.

Bankaupplýsingarnar eru: 0321-26-8191 og kennitalan er: 131091-2309.

Auglýsing

læk

Instagram