Elli og Ingvar taka baðherbergið í gegn: „Hversu gjörsamlega sturlað er þetta baðherbergi að verða?“

Nú styttist í að íbúðin hjá Ella og Ingvari verði tilbúin. Í þætti dagsins taka þeir baðherbergið og þvottahúsið í gegn og þá er ekki mikið eftir. Horfðu á þáttinn hér fyrir ofan.

Í næstu viku fáum við svo að sjá lokaútkomuna.

þáttur: Gerðu upp íbúð þrátt fyrir varnarorð fagmanna: „Ekki gera þessa íbúð upp — það borgar sig ekki“
þáttur: Elli og Ingvar óðu í stofuna með sleggjum og við erum með dramatískt myndband sem sannar það
þáttur: Ingvar plataði Ella til að bera þunga hluti á meðan hann þóttist pissa: „Geturðu ekki tekið aðeins meira eða?“
Lesendur Nútímans kynntust Ella og Ingvari árið 2016 þegar þeir gerðu upp íbúð í vefþáttunum Gerum þetta bara. Nú eru strákarnir komnir aftur í nýjum þáttum og viðfangsefnið er íbúð sem fagmenn höfðu sagt að borgi sig ekki að gera upp.

Elli og Ingvar voru ósammála. Þeir réðust í verkið með reynslu og húmor að vopni og úr varð þessi stórskemmtilega fimm þátta sería eftir Heimi Bjarnason sem sýnd verður hér á Nútímanum. Fylgstu með frá byrjun og horfðu á fyrsta þáttinn hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram