Hvaða bearnaise-sósa sem fæst úti í búð er best? Grillarar smakka sósurnar og gefa einkunnir

Sumarið er tíminn til að grilla. En hvernig á fólk að geta valið bearnaise-sósu þegar endalaust úrval er í boði?

Bearnaise-pervertinn Elísabet Inga fékk til sín þá Hjalta Vignis og Arnar Sigurðsson úr Facebook-hópnum Grillsamfélag Íslands til að smakka nokkrar einfaldar bearnaise-sósur sem fást út í búð. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Grillsamfélag Íslands á Facebook er hugsað sem vettvangur fyrir ástríðufulla grillara til að deila öllu því sem tengist grillmenningu, hvort sem um ræðir gas, kol eða reyk, uppskriftir, aðferðir og það sem hverjum dettur í hug hverju sinni. Samfélagið stækkar stöðugt og í dag eru meðlimirnir á þriðja þúsund.

Auglýsing

læk

Instagram