Lionel Richie hringir í Adele, frábært grín sem allir biðu eftir

Adele gerði allt vitlaust fyrir helgi þegar hún sendi frá sér nýtt lag. Lagið heitir Hello og þú getur horft á myndbandið hér. Annar stórkostlegur listamaður, Lionel Richie á frægt lag með sama nafni og nú er einhver sniðugur búinn að skella þeim saman í mjög gott grín.

Lionel Richie hringir í Adele. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Splunkunýtt og tilfinningaþrungið lag frá Adele, ný plata í nóvember

Lag Adele er af þriðju plötu söngkonunnar sem kemur út 20. nóvember. Adele sló í gegn árið 2011 þegar hún sendir frá sér aðra plötu sína, 21. Platan hefur selst í 30 milljón eintökum um allan heim og fært söngkonunni flest verðlaun sem hægt er að vinna.

Auglýsing

læk

Instagram