Maggi Texas biður þjóðina afsökunar á því að hafa hengt upp mynd af Donald Trump

Veitingamaðurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Magnús Ingi Magnússon, best þekktur sem Maggi Texas, hefur beðist afsökunar á því að hafa hengt upp mynd af Donald Trump og eiginkonu hans á veitingastað sínum, Texasborgurum. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

„Nú langar mig að biðja íslensku þjóðina og viðskiptavini Texasborgara afsökunar. Ég hélt að þetta væri svo mikið djók og setti upp Donald Trump. Mér fannst þetta skemmtilegur karakter,“ segir Maggi í myndbandinu.

Ég er búinn að fá þvílíkar ábendingar um að þetta sé ekki góður maður. Ég er búinn að taka Donald Trump og konuna hans niður á Texasborgurum.

Magnús segir í myndbandinu hér fyrir neðan að myndin hafi verið sett upp í gríni. „En þetta hefur farið mjög illa í landann,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Instagram