today-is-a-good-day

Markmið Maríu í Meistaramánuði er að læra að synda: „Ég lærði aldrei almennilega að synda“

Meistaramánuður er í febrúar að þessu sinni og fjölmargir Íslendingar hafa sett sér fjölbreytt markmið. Nútíminn ætlar í samstarfi við Íslandsbanka að fylgjast með þremur meisturum reyna að ná markmiðum sínum. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

María Guðjohnsen ætlar að læra að synda í Meistaramánuði. Við fórum með henni í fyrsta sundtímann þar sem vinkona hennar kenni henni réttu tökin. Dóra Björk Þrándardóttir ætlar að reyna að forðast að kaupa sér páskaegg en þrátt fyrir að páskarnir séu í apríl eru páskaeggin komin í hillur verslana.

Loks hefur Nanna Kaaber sett sér fjölbreytt markmið en eitt af þeim er að klára 2.017 burpees í febrúar. Við fylgjumst með hvernig gengur.

Auglýsing

læk

Instagram