Myndband: Kafbátur dúndrar sér upp úr ísilögðu Mývatni í nýrri stiklu fyrir The Fate of the Furious

Kafbátur dúndrar sér upp úr ísilögðu Mývatni og allt springur í tætlur í nýrri stiklu fyrir kvikmyndina The Fate of the Furious. Horfðu á stikluna hér fyrir neðan.

Myndin kallaðist Fast 8 þegar tökur á henni fóru fram hér á landi. Myndin, sem er sú áttunda í röðinni í Fast and the Furious myndaflokknum, var að hluta til tekin upp hér á landi. Fast and the Furious myndirnar njóta gríðarlegra vinsælda. Síðasta myndin í flokknum, Furious 7, er til að mynda sjötta tekjuhæsta kvikmynd allra tíma.

Á meðal leikara sem sem fara með hlutverk í myndinni eru Jason Statham, Dwayne Johnson, Michelle Rodriguez og auðvitað Vin Diesel, sem er einnig einn af framleiðendum.

80 bílar auk tækja og annars búnaðar voru flutt til landsins í tengslum við tökur myndarinnar.

Auglýsing

læk

Instagram