Svakaleg stikla úr nýjustu kvikmynd Baltasars sýnir að hafið gefur og hafið tekur

Stikla úr kvikmyndinni Adrift, eftir Baltasar Kormák, var birt á Youtube í dag. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum. og verður frumsýnd á Íslandi 1. júní. Stiklan er ansi mögnuð og þú getur horft á hana hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Svona komst Baltasar Kormákur í þetta klikkaða form

Myndin er byggð á á sögu Tami Oldham og Richard Sharp sem ætluðu að sigla skútu frá Tahíti til San Diego árið 1983 og lentu í vægast sagt miklum hremmingum.

Leikkonan Shailene Woodley fer með aðalhlutverkið í Adrift og Baltasar sagði í samtali við Nútímann í fyrra að hún sé ofboðslega góð leikkona. „Ég hugsa hins vegar að hún sé frægari hjá unglingum en fullorðna fólkinu.“ sagði hann léttur.

Baráttan við náttúruöflin er áberandi í myndunum Everest og Djúpinu eftir Baltasar og ljóst er að hann verður við sama heygarðshornið í Adrift. „Ég hef bæði verið í fjallgöngu og siglingum og tengi því við þessar myndir. Ég hef gaman af því þegar einstaklingurinn þarf að mæta náttúrunni og þess vegna heilla svona myndir mig,“ sagði hann.

„Það vita það ekki margir en ég var mikið í siglingum þegar ég var yngri. Mér var meira að segja boðið að keppa á Ólympíuleikunum sem ég þurfti að hafna þar sem ég var að byrja í leiklistarskólanum. Annars hef ég bara gaman að því að taka að mér flókin og erfið verkefni, svona myndir eru oft erfiðar.“

Auglýsing

læk

Instagram