Svakalegt myndband Kanye sýnir naktar útgáfur af Kim, Taylor Swift og Trump

Rapparinn Kanye West frumsýndi myndband við lagið Famous í Los Angeles í gær. Horfðu á myndbandið, sem hefur vakið mikla athygli, hér fyrir neðan.

Lagið er af plötunni Life of Pablo og í myndbandinu má sjá vaxstyttur af Kanye sjálfum, sofandi í rúmi ásamt Kim Kardashian, Taylor Swift, Rihönnu, Amber Rose, Donald Trump, CAitlyn Jenner, Bill Cosby, Ray J, Chris Brown, Önnu Wintour og George Bush. Þau eru öll nakin.

Kanye sýndi myndbandið tvisvar í röð og sagði frá framleiðsluferlinu. „Mig langar til að þakka ykkur öllum, eiginkonu minni og öllum sem komu með hugmyndir og sannleik,“ sagði hann eftir að hafa frumsýnt myndbandið.

Ég er með samt með eina spurningu, á ég að spila myndbandið aftur?

Kanye sagði í samtali við Vanity Fair að hann sé hvorki að styðja né gagnrýna neinn sem „kemur fram“ í myndbandinu. „Þetta er athugasemd um frægð.“

Horfðu á slæma útgáfu af myndbandinu hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram