Tóku upp tónlistarmyndband í leyfisleysi í Costco í Kauptúni, sjáðu myndbandið

Tónlistarmynd sem rappararnir Joey Christ, Hr. Hnetusmjör, Aron Can og Birnir gerðu við lagið Joey Cypher var allt tekið upp í verslun Costco í Kauptúni. Myndbandið var forsýnt á Prikinu í gærkvöldi og er frumsýnt á Nútímanum. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Joey Christ segir í samtali við Nútímann að þetta sé í fyrsta skipti sem rappararnir fjórir vinna saman að verkefni. Lagið varð til á nokkrum vikum og segir hann að um stemningsrapplag sé að ræða. Aronmola tók þátt í að klippa myndbandið.

Samkvæmt heimildum Nútímans fengu tónlistarmennirnir ekki leyfi fyrir því að taka myndbandið upp í Costco. Forsvarsmenn verslunarinnar hafa ítrekað hafnað beiðnum fjölmiðla um að fá að taka upp inni í Costco og því eru þær myndir og myndbönd sem hafa verið birtar úr versluninni aðallega verið frá almenningi.

Auglýsing

læk

Instagram