Örskýring: Af hverju er fólk annað hvort með Jennifer Aniston eða Angelinu Jolie í liði?

Um hvað snýst málið

Angelina Jolie og Brad Pitt eru að skilja. Frá því að þau byrjuðu saman hefur fólk skipst í fylkingar, í liði með Angelinu Jolie eða Jennifer Aniston, fyrrverandi eiginkonu Pitt.

Hvað er búið að gerast

Jennifer Aniston og Brad Pitt giftu sig árið 2000. Þau skildu fimm árum síðar og í viðtali í People nokkrum mánuðum eftir skilnaðinn gaf hún í skyn að Pitt hafi haldið framhjá sér með Jolie.

Þar með byrjaði fólk að styðja annað hvort Jennifer Aniston eða Brangelinu, eins og Brad Pitt og Angelina Jolie hafa verið kölluð í fjölmiðlum vestanhafs.

Síðustu ár hafa Jennifer Aniston og Brad Pitt oft varpað olíu á eldinn með því að tjá sig um hvort annað í fjölmiðlum.

Brad Pitt sagði til dæmis í viðtali við tímaritið Esquire árið 2013 að hjónaband hans og Aniston hafi verið svo slæmt að hann hafi verið undir áhrifum eiturlyfja við flest tækifæri.

Þá hefur Aniston verið sökuð um að nota vinkonu sína, grínistann og spjallþáttastjórnandann Chelsea Handler, til að koma föstum skotum á Angelinu Jolie á framfæri.

Angelina Jolie hefur ekki tjáð sig um Aniston opinberlega.

Hvað gerist næst?

Við þurfum að fá botn í þetta:

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Instagram