Foreldrabænin: fyrir trúlaust fólk sem er að ala upp annað fólk

Ég á til æðruleysi til að díla við þessar aðstæður. Æðruleysi til þess að sætta mig við (næstum því) allt sem ég fæ ekki breytt hjá börnunum mínum. Þolinmæði til þess að breyta því sem ég get breytt og umburðarlyndi til að greina þar á milli.

Ég trúi á skólakerfið, internetið og manngæsku annarra. Börnin mín eru sjálfstæðar manneskjur, verði þeirra vilji – innan skynsamlegra marka. Ég fyrirgef þeim þeirra skuldir, syndir og flestar yfirsjónir því þau eru börn með æfingaleyfi í lífinu.

Amen og Namaste eftir efninu.

Aðlagist eftir þörfum.

Með þessari bæn má drekka hvað sem er og anda með nefinu.

 

Auglýsing

læk

Instagram