R. Kelly sannar fyrir blindfullum Flórídabúa að hann sé í raun R. Kelly

Fréttir / Myndbönd

Síðastliðið laugardagskvöld rakst ungur Flórídabúi á söngvarann R. Kelly fyrir framan Nathan’s Famous pylsuvagninn í Jacksonville, Flórída. Flórídabúinn, sem var sjáanlega hífaður, og sem neitaði jafnframt að trúa því að maðurinn væri í raun hinn eini og sanni R. Kelly, gerði sér lítið fyrir og skoraði á hann í söngvakeppni. Lagði Flórídabúinn meira að segja 100 dollara að veði.

R. Kelly sló til.

Flutti söngvarinn lagið Bump N’ Grind (sem kom út árið 1993) af mikilli innlifun og voru áheyrendur hæstánægðir með frammistöðuna. Hins vegar lét Flórídabúinn ekki sannfærast og neitaði að láta peninginn af hendi – en R. Kelly tók þessu með ró:

“Oh, shit! This muthafucker’s drunk as hell!”

– R. Kelly

Auglýsing

læk

Instagram