Fyrsta „official“ stiklan úr væntanlegri kvikmynd um Tupac: All Eyez On Me

Fréttir

Í dag birti vefsíðan Complex fyrstu „official“ stikluna úr kvikmyndinni All Eyez On Me (sjá hér fyrir ofan) en kvikmyndin er byggð á ævi rapparans Tupac Shakur. All Eyes On Me verður frumsýnd þann 16. júní 2017 sem er jafnframt afmælisdagur hins heitna rappara; Tupac hefði orðið 46 ára gamall í sumar.

Demetrius Shipp, Jr. fer með hlutverk Tupac en hann vill meina að kvikmyndin hafi alla burði til þess að verða ein stærsta ævisögulega kvikmynd („biopic“) allra tíma. 

Nánar: https://www.complex.com/pop-cul…

Auglýsing

læk

Instagram