Katy Perry og Migos gefa út nýtt lag: Bon Appétit

Bandaríska söngkonan Katy Perry sendi frá sér nýtt lag í morgun (28. apríl). Lagið ber titilinn Bon Appétit og skartar röppurunum í Migos. Bon Appétit er fyrsta lagið sem Katy Perry gefur út frá útgáfu lagsins Chained to the Rhythm í febrúar en búist er við því að þessi tvö lög rati á fjórðu hljóðversplötu Perry. Í viðtali við Capital FM stuttu eftir útgáfu Chained to the Rhythm sagðist söngkonan ætla að einbeita sér að útgáfu einstakra laga á komandi misserum. 

Samstarf Katy Perry og Migos kemur ekki beinlínis á óvart en söngkonan hefur áður starfað með röppurum á borð við Kanye West (E.T., Dark Horse), Timbaland (If We Ever Meet Again) og Snoop Dogg (California Girls). 

Nánar: https://www.complex.com/music/2…

Lagið er einnig aðgengilegt á Spotify:

Migos hafa verið á miklu flugi undanfarið. Hér fyrir neðan má sjá rapparana koma fram í spjallþættinum The Tonight Show ásamt Rick Ross og flytja lagið Trap Trap Trap. 

Auglýsing

læk

Instagram