Kendrick Lamar með erindi í endurhljóðblandaðri útgáfu af „Mask Off“

Erlent

Lagið Mask Off eftir Future verður að teljast eitt vinsælasta rapplag 2017. Hann
hefur þegar flutt lagið í beinni útsendingu sjónvarpsþáttarins Jimmy Kimmel Live; skotið myndband við lagið sem skartar engri annarri en Amber Rose; og fylgst með laginu klifra upp vinsældalista Billboard (lagið fór upp í 5. sæti listans á sínum tíma). 

En nú má segja að lagið hafi náð nýjum hæðum eftir að sjálfur Kung-Fu Kenny (Kendrick Lamar) ákvað að rita erindi við endurhljóðblandaða útgáfu af laginu í samstarfi við Future (sjá Spotify útgáfu hér fyrir ofan og Youtube hlekk hér fyrir neðan. Erindi Kendrick Lamar byrjar um 1:55).

Auglýsing

læk

Instagram