Nýtt frá 2 Chainz og Travis Scott: 4 AM

Um helgina gaf rapparinn 2 Chainz aðdáendum sínum sýnishorn úr nýju lagi með rapparanum Travis Scott. Lagið ber titilinn 4 AM og skartar viðlagi frá La Flame (Travis Scott), erindum frá 2 Chainz og bíti frá Murda Beatz og Cubeatz. Var það svo í gær (30. maí) sem lagið leit loks dagsins ljós (sjá hér fyrir ofan).

Lagið verður að finna á plötunni Pretty Girls Like Trap Music en Chainz afhjúpaði einnig lagalista plötunnar í gær, sem er svohljóðandi:

1. „Saturday Night“
2. „Riverdale Rd“
3. „Good Drank“ f/ Gucci Mane and Quavo
4. „4 AM“ f/ Travis Scott
5. „Door Swangin“
6. „Realize“ f/ Nicki Minaj
7. „Poor Fool“ f/ Swae Lee
8. „Big Amount“ f/ Drake
9. „It’s a Vibe“ f/ Ty Dolla $ign, Trey Songz, and Jhené Aiko
10. „Rolls Royce Bitch“
11. „Sleep When U Die“
12. „Trap Check“
13. Blue Cheese f/ Migos
14. „OG Kush Diet“
15. „Bailan“ f/ Pharrell
16. „Burglar Bars“ f/ Monica

Eins og sjá má hér fyrir ofan vantar ekki góða gesti á plötuna en Nicki Minaj, Migos, Pharrell, Drake, Monica og fleiri ljá plötunni rödd sína. Platan Pretty Girls Like Trap Music er væntanleg næstkomandi 16. júní. 

Þess má einnig geta að 2 Chainz hefur þegar gefið út myndbönd við lögin Good Drank og It’s A Vibe (sjá hér fyrir neðan):

Lagið 4 AM er einnig komið á Spotify:

Auglýsing

læk

Instagram