Nú líður að Óskarnum og erum við Íslendingar líklega að eignast Óskarsverðlaunahafa! Hildur okkar Guðnadóttir – er langlíklegasti kandídatinn til að hafa sigur. Ekki nóg með að Hildur sé með stuðulinn 1,16 á sigri á vefmálasíðunni Betsson heldur hefur fjölmiðillinn New York Times spáð því að okkar koni hljóti Óskarsverðlaunin í flokki kvikmyndatónlistar á sunnudaginn.
Af öðrum er það að frétta að leikarinn Joaquin Phoenix er líklegastur til að vera valinn besti leikarinn fyrir túlkun sína á Jókernum. Á meðan myndin 1917 þykir líklegust til að hafa sigur fyrir bestu myndina með 1,40 í stuðul á sigri.
Þá er gaman að segja frá velgengni Hildar sem hefur rústað verðlaunahátíðum í Bandaríkjunum og Bretlandi á síðustu vikum og mánuðum. Hún hefur þegar sigrað Emmy-verðlaun í haust fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Að ógleymdum Golden Globe í byrjun árs, Grammy-verðlaun nokkrum vikum seinna og svo BAFTA-verðlaun um síðustu helgi.
Það verður gaman að fylgjast með Óskarnum – og nú er loksins komið að því að við Íslendingar tökum Óskarinn!