Almennt skólahald fellur niður

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna aftaka¬veðurs á morgun, föstudag 14. febrúar.

Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7:00 til 11:00 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Svo tekur appelsínugul veðurviðvörun við frá kl 11:00 til 15:00.

Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum.

Veðrið gengur niður eftir kl. 15 samkvæmt spá sem þýðir að ýmis þjónusta raskast eða fellur niður í fyrramálið og jafnvel allan daginn.

Almennt skólahald fellur niður.

Frístundaheimili opna þegar viðvörunum lýkur. Eins og staðan er núna er appelsínugul viðvörun í gildi til kl. 15:00

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum.

Samkvæmt spám á veður að ganga niður eftir hádegi og verður hægt að vera á ferðinni eftir kl. 15 að öllu óbreyttu. Staðan verður endurmetin í fyrramálið. Þetta kemur fram á facebook síðu Slökkviðliðsins á Höfuðborgarsvæðinu.

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu vedur.is

Auglýsing

læk

Instagram