Tónleikarnir þrír hafa allir sína sérstöðu og ólíka dagskrá. Á þessum viðburðum koma fram með Björk um það bil 100 íslenskir tónlistarmenn. Þetta er hátíð þar sem Björk heldur upp á samstarf sitt við tónlistarfólk frá Íslandi, sem starfað hefur með henni í hljóðverum og á tónleikum út um allan heim.
Samhliða tónleikunum er haldin söfnun til styrktar Kvennaathvarfinu.
|