Arnar Þór Hafþórsson setti inn myndband á Facebook síðuna Bakland Ferðaþjónustunnar í dag.
Í myndbandinu má sjá tvo einstaklinga hætta sér óhugnanlega nálægt Dettifossi.
„Beið eftir því að þeir hyrfu í fossinn eftir selfie myndatökur, ofl, “ skrifar hann við myndbandið.
Hann skrifar einnig að leiðin sem fólkið fór að fossinum hafi verið merkt ófær.