Vefsíðu íslensku tónlistarveitunnar Gogoyoko hefur verið lokað en tónlistarveitan Atmo Select tekur við kyndlinum. Þetta kemur fram á Mbl.is. Ívar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Atmo Select, segir í samtali við Mbl.is að Gogoyoko hafi ekki náð að fylgja þjónustu sinni eftir með nægilegri markaðssetningu á erlendis.
Atmo Select býður upp á sérsniðnar tónlistarlausnir fyrir fyrirtæki og þjónustar meðal annars Smáralind, Krónuna, Arion banka, Saffran, Elko, Vodafone og Slippbarinn. Fyrirtækið er á leiðinni í útrás til Hollands og Þýskalands.
„Þegar þú kemur inn í nýlenduvöruverslun og gengur fram hjá ávaxtaborðinu finnurðu ávaxtalyktina og það verður til einhvers konar upplifun. Tónlistin getur einnig verið stór þáttur og skapar ákveðna stemningu sem getur stutt við ímynd fyrirtækisins,“ segir Ívar í samtali við Mbl.is.