Hönnuðurinn Jón Kári Eldon hefur sett upp vefinn Bagg er bögg þar sem hann birtir tölfræði yfir tíu ára neyslu sína á munntóbaki. Ár er síðan Jón hætti að nota munntóbak og nú hyggst hann hjálpa öðrum að hætta.
Hann segir líf sitt hafa batnað síðan hann hætti að taka í vörina.
Ég er við betri heilsu, laus við fíknina í munntóbak og nokkrum þúsund köllum ríkari.
Jón birtir á síðunni tölfræði yfir neyslu sína á afar aðgengilegan hátt og sýnir meðal annars að tóbaksdósirnar voru 720 á þessum tíu árum, sem íþróttafréttamanninum Henry Birgi finnst reyndar enginn árangur.
@jonkarieldon ein og hálf Á VIKU? Varla hægt að tala um að þú hafir verið í neyslu.
— Henry Birgir (@henrybirgir) June 30, 2015
Jón hefur engu að síður reiknað út að hann hafi tekið að minnsta kosti 36 kíló af tóbaki í vörina í 18 þúsund „lummum“.
Þá hefur Jón eyddi Jón um 820 þúsund krónum í neysluna en hefur sparað um 82 þúsund krónur á þessu ári sem hann hefur verið laus við fíknina.
„Tölurnar komu sjálfum mér á óvart. Það er von mín, að neytendur munntóbaks sjái þessa vefsíðu og að hún geti hjálpað þeim að taka sömu ákvörðun og ég tók – að lifa án munntóbaks,“ segir Jón á síðunni.
Hann segir að meginmarkmið verkefnisins sé að reyna fækka neytendum munntóbaks. Sjálfur leyfði hann notendum Twitter að fylgjast með sér þegar hann hætti að nota tóbak og er í dag sannfærður um að það hafi hjálpað til.
„Því vil ég hvetja þig, kæri neytandi, til að nota þessa aðferð sem reyndist mér svo vel. Byrjaðu talninguna þína í dag og leyfðu okkur hinum að hvetja þig áfram í gegnum myllumerkið #baggerbögg,“ segir hann.
„Saman munum við kveðja munntóbaksdolluna, hornið, lummuna, baggið, brúnu tennurnar, hringlaga farið á gallabuxunum, allar buguðu sjoppuferðirnar og ekki síst öll þau 28 krabbameinsvaldandi efni sem má finna í munntóbaki.“