Gjafaleikur á vinsælli bloggsíðu Línu Birgittu Camillu hefur vakið talsverða athygli og þá sérstaklega stórskemmtilegur texti hennar um vörurnar Beauty Formulas Feminine. Að sögn Línu eru vörurnar ætlaðar „persónulega“ svæðinu á konum og meðal varanna eru pjöllusápa, pjöllusprey og blautþurrkur, eða pjöllu-wipes.
Tónlistarmaðurinn Pétur Jónsson hefur lesið texta Línu Birgittu upp sem dramatíska kvikmyndastiklu. Stikluna birti hann á Twitter en útkoman er ansi skemmtileg (og vekur eflaust enn meiri athygli á vörunum).
Hlustaðu á hinn svokallaða pjöllutrailer hér fyrir neðan.