Bein útsending frá leik Íslands og Frakklands hófst um 30 sekúndum eftir að leikurinn hófst. Skýringin ku vera sú að leikurinn hófst of snemma þar sem Evrópska knattspyrnusambandið fylgdi ekki eigin plani, eftir því sem Nútíminn kemst næst.
Staðan var0-0 í hálfleik en leikurinn er sá fyrsti hjá íslenska liðinu á Evrópumóti kvenna sem hófst í Hollandi á sunnudag. Á Twitter var fólk ekki sátt við að missa af byrjun leiksins og var atvikinu líkt við frægt atvik árið 2013 þegar auglýsing frá Bakarameistaranum fór í gang eftir leik Íslands og Noregs eftir að strákarnir okkar tryggðu sér sæti í umspili á HM.
Málið var að sjálfsögðu rætt á Twitter
Kickoffið í fyrsta leik selt til VÍS. Þurfti þess endilega RÚV? #emrúv
— Dagny Aradottir Pind (@dagnyara) July 18, 2017
Hvaða fáránlega augnlýsinga hlé er þetta? #fotboltinet #emruv
— Ingi Björn Grétarsso (@ingibg) July 18, 2017
HVAÐA PRUMPU SKANDALL VAR ÞETTA AUGLÝSINGAHLÉ??? #emruv
— Kristín Lovísa (@Lobbsterinn) July 18, 2017